Yfirbygging

Hér er tekinn lið fyrir lið í nokkuð góðri tímaröð endursmíðin á yfirbyggingu bílsins

Fyrst var byrjað á að naga afturhornin af... Hefur þetta farið svona áður á G ?

Kransakaka! já það er rétta nafnið á svona ryðhrúgu.

Já sko. Bara búið að "naga" kökuna úr.

Búið að föndra innri stykkin í.

Og hér er svo hornið komið á.

Úff þarna var gólfið svolítið ryðgað frá skálinni. Þarna er búið að laga það.

Sama innra bretti, bara hinumegin.

Æ þú dapri dyrastafur....

Ég fékk hann miklu betur úr öðru flaki.

Smá duftmyndun var nú samt á ferðinni, svo ég opnaði hann til að blása að innan.

Sandblásið og tilbúið til að setja saman aftur.

Endin á innra brettinu var orðin dapur. Hér er búið að laga það.

Og hér er dyrastafurinn kominn í bílinn.

Svo var samstæðan tekin af.

Og hér er hún nánast öll komin af.

Þarna var nú ögn kransakaka líka...

Hvað er nú í gangi...? Hvaðan kom allt þetta...?

Þröstur !!!!! Hvað ertu að gera maður?

Þú áttur að þrífa hann..... Ekki rífa hann..!!!!!

Jæks!!!! Hvað hef ég gert ?????

Jæja.... Fyrst hann er búinn að þessu er bara að gera það besta úr stöðunni og halda áfram... HEHEHE

Svo "hetjan"tók bara við og hélt bara áfram að rífa.

"Hetjan"

 

 

Uppfærsla 5.3.2009

Hér var þokkaleg "kransakaka" Smíða þarf þetta alveg upp á nýtt.

Hér er búið að skera innri og ytri sílsinn úr.

Hér er ég búinn að smíða innri sílsinn.

Og hérna er hann kominn í bílinn.

 

 

Uppfærsla 3.5.2009

Hér er svo búið að skipta um hornið sílsinn og dyrastafinn.

Hinumegin var ekki um neitt annað að ræða en spæna hliðina af.

Og hér er búiða að tæta hliðina af bílnum.

Bíddu!!! Ég er að fara að nota skrúfstikkið...! - - - - JÁ ..... SÆÆÆÆLL!!!!

Og eftir að hafa endurheimt skrúfstikkið var smíðaður innri síls eins og hinumegin .

Og hér er nýji sílsinn og dyrastafurinn mátaður í bílinn.

Hér er búið að taka hægra afturbrettið af og smíða plötuna milli brettis og innra brettis.

Og svo er að máta afturbrettið á.

 

 

Uppfærsla 26.5.2009

Æ þú rammelskaði Ryðmaur eða hitt þó heldur

Bara að saga þetta úr og kaupa nýtt

Og hér er búið að naga þetta gluggastykki úr bílnum

Ótrúlegt við þessar ryðbætingar hvað það tekur oft miklu meiri tíma að taka

ruslið úr en að setja það nýja í . Hornið var líka ónýtt og ég tók það líka úr.

Og hér er nýja gluggastykkið og annað horn komið á bílinn.

Annað sjónarhorn á nýja gluggastykkinu. Tilbúið að setja brettið á.

Og hér er búið að sjóða bæði gluggastykkið og afturbrettið á bílinn.

 

 

Uppfærsla 9.11.2009

Þarna er verið að hefja lokafrágang á ytra byrgðinu á vinstri hliðinni.

Og þarna er fráganginum lokið og búið að grunna þennan hluta.

Þarna er hafist handa við að föndra hina hliðina í.

Þetta stykki er ekki hægt að fá frá M.Benz og því varð að smíða það.

Hérna er neðri hlutinn af hægri hliðinni kominn í og búið að sjóða fast.

Og svona leit Klaus út að kvöldi dags 8. nóvember 2009.

 

 

Uppfærsla 3.12.2009

KRANSAKAKA!!! Humm hvað á ég að gera í þessu svosem..??

Byrja á að saga eitthvað úr þessu og hreinsa þetta upp

Þarna er búið að hreinsa af þessu allt ryð. Þetta var hræðileg prílvinna.!

Og þarna er búið að sjóða upp innra stykkið og búið að klemma það ytra á.

Og búið að sjóða ytra stykkið fast.

Ég var búinn að spyrja marga hvað ég ætti að gera við toppinn, en það var komið nokkuð af litlum ryðbólum sem þurfti að hreinsa upp úr áður en hann yrði málaður. Einnig voru eitthverjar smá beyglur í honum. Flestir sem höfðu að eigin sögn eitthvað vit á þessum málum sögðu mér að leysa af honum lakkið. Hér er leysirinn kominn á og allt byrjað að krauma.

Vissu þessir menn ekkert hvað þeir voru að segja.... ÉG HATA ÞETTA EFNI...!!!!

Jú þetta reyndist rétt. Það var miklu betra að sjá bólurnar og hérna er búið að sandblása stærstan hlutan af þeim.

Ryðbæting sjálfrar yfirbyggingarinnar er lokið. Það fer því að styttast í að það sé hægt að fara að mála boddýið á bílnum.

Næst verður því fjallað um viðgerðir á lausum boddýhlutum bílsins.

 

Innri bretti

Hér má sjá ryðstað sem margir eigendur eldri G bíla kannast við.

Og þarna er búið að laga það. Þá er bara að fara með brettið í sandblástur.

 

Hurðir

Báðar hliðarhurðir bílsins voru gjörónýtar og þá meina ég gjörónýtar. Ég fékk tvær svona hvítar hurðir sem voru mjög heilar, en það var samt komið smá kransakaka þarna í kantinn neðst á þessari. Ég ákvað því að laga það. Hér er búið að skera úr.

Heill og góður innri botn. Smá horn sem þurfti að laga þarna og sandblása hann smá.

Er ekki rétt að nýta úr gamalli Benz hurð af S bíl... HEHE ekki kreppan endilega, bara verið að redda sér með efnivið utan opnunartíma verslana og blikksmiðja síðla parts á laugardegi. Sniðugar þessar samsuðufestingar sem ég lét pranga inn á mig af söluhörðum breta á Techno Classica sýningunni í Essen í Þýskalandi. Það reyndist bara sæmilega nothæft þetta breska dót... HEHEHE

Já sko.. það tókst að koma þessu saman. Ekki var von á öðru

og búið aðganga frá kantinum að innanverðu.

 

 

Uppfærsla 9.12.2009

Frambretti

Frambrettin voru mjög heil og sérstaklega það hægra sem var bara mjög gott.

Eitthvað þurfti nú samt að laga vinstra brettið og hér má sjá nokkur göt sem komu i ljós er farið var að sandblása upp úr ryðblettunum á því.

Þarna er semsé verið að vinna við að sjóða bæturnar í brettið.

Búið að sjóða í öll götin á brettinu að framanverðu.

Þá er hérna byrjað á að laga smá skemmd sem var í kantinum að aftanverðu.

Hér er búið að laga og slípa það til.

Brettið loks tilbúið til að fara að vinna það undir sprautun.

Hitt brettið er á þessum tímapúnkti einnig fullbúið til sprautunar.

 

 

Uppfærsla 10.2.2010

Eins og vera ber eftir svona viðgerð er eitt og annað sem þarf að mála. Hérna er verið að fara að klára að grunna yfir ýmsa bletti innan í bílnum.

Búið að úða grunni á blettina

Búið að bletta yfir þá með lit.

Nú er bíllinn kominn á það stig að bílamálarinn getur tekið við og málað yfirbygginguna.

 

Uppfærsla 27.6.2010

Hér er Doktorinn að sklípa sparsl.

Og þetta lítur svona ljómandi vel út.

Þarna er búið að finna húdd á bílinn í staðin fyrir það gjörónýta sem var á bílnum.

Lakkleysirinn "góði" !!!!

Og lakkið birjað að "hoppa"

Og þá er hægt að fara og láta sandblása kantana og undirbúa sprautun á þessu.

Þessum lið uppgerðarinnar er lokið.

Áfram í samsetningu