Sprautun og samsetning

Uppfærsla 24.3.2010

Hér er yfirbyggingin að verða klár fyrir sprautun.

Blindaksur inn í klefa. Merkilegt hvað þessir bílamálarar eru flínkir að rata...HEHE

Já og hann hitti á réttan stað. Næst er það .. málimálimáli...!!

Og svona var hann er hann kom aftur heim í hérað...!

Já sæll!!! Eldrauður !!!

Nú er hægt að fara að tína eitthvað af þessu saman... ;)

 

Uppfærsla 27.6.2010

Hér er verið að föndra við mælaborðið.

Mælaborðið hægt að fara saman.

Og hér er mælaborðið komið saman.

 

Uppfærsla 9.7.2010

Eitthvað farið að týnast inn í bílinn.

Og "verktakinn" búinn að vera að dunda í innréttingunni.

Búið að mála innri brettin.

Og þá er búið að setja þau á ásamt því að setja vatnskassan á sinn stað.

Jæja. búið að mála frambrettin.

Byrjaður að skrúfa.

Andlit að fæðast.

Og þá er nú trýnið farið að tolla svona sæmilega á tíkinni og allt farið að virka.

 

Uppfærsla 12.9.2010

Þá er nú svona ögn að komast á þetta bílsmynd.

Eitt og annað að verða komið á sinn stað.

Og öll stjórntækin þó ekki mörg séu á réttum stað.

Þetta er nú að verða snyrtilegt

 

Vökunóttin langa.

Ákveðið hafði verið að fara á bílnum í Vestfjarðaferð Fornbílaklúbbs Íslands og til að það væri hægt þurfti allan tiltækan mannskap til að setja saman og allan tíman sem eftir væri fram að ferð. Það var vökunótt framundan.

Komið fram á kvöld og flokkurinn á fullu.

Allt of mikið eftir

Klukkan tifar

Hægt kemur þetta nú samt

Kominn morgun og "venjulegt" fólk farið að mæta til vinnu.

Ætlar þetta kanski bara að hafast. Nokkrir klukkutímar í ferð.

Út vil ek....

Og í skoðun skal ek...

Eftir að hafa fengið fulla skoðun var mér semsé frjálst að fara að skrúfa númeraspjöldin á.

G 1982 tákna týpu og árgerð þessa ágæta bíls.

Uppgerðinni er semsé hér formlega lokið og þessar fyrir og eftir myndir segja meira en mörg orð.

 

Áfram í eitt og annað