Vélbúnaður

Mótor

Það fyrsta sem gert var eftir að ég fékk bílinn var að setja hann í gang

Mótornum var gefið ögn af dísilolíu og smá straum, en eitthvað vildi ekki samt

Við svo búið var prófað að draga hann í gang sem hann gerði eins og skot og gekk bara fínnt. Ganghljóðin voru fín og allt útlit fyrir að vélin væri góð. Eftir þetta hefur Klaus alltaf rokið í gang í fyrsta starti og vélin í honum reykir ekki neitt óeðlilega, ekki einu sinni ísköld. Það er því bara að láta á mótorinn reyna, allavega ætla ég ekki að fara að laga eitthvað sem virðist í lagi.

 

Startari

Reyndar fannst fljótlega ástæðan fyrir því af hverju hann vildi ekki í gang á startinu fyrst þegar átti að reyna gangsetningu. Ræsihreyfillinn var eitthvað orðin slappur og var hann því tekin og gerður upp.

Þessar tvær myndir hér að ofan eru af nýuppgerðum ræsihreyflinum.

 

Vatnskassi

Vatnskassinn var hinsvega eitthvað pínulítið farin að líta laslega út...

Uhumm kanski skoða hina hliðina... Pínulítið já...!!!! Þetta er alveg gjörónýtt drasl.

Þetta endaði því með því að ég fór með annan, ekki neitt mikið minna dapran vatnskassa sem ég átti úr öðrum bíl og lét bara setja nýtt elimennt í hann. Þessi kassi hafði það sér þó til tekna fyrir uppgerðina að botnin á honum var töluvert betri en á kassanum sem var í bílnum. Eitthvað hafði verið drullumeikað við aðra botnfestinguna á honum eftir eitthvað óhapp.

 

Þessum kafla uppgerðarinnar er lokið.

Áfram í drifbúnað