Drifbúnaður Driflína bílsins var að mestu leiti í ágætis ástandi. Þó voru nokkur atriði sem þurfti að laga og má þar nefna bremsur og drifskaft svo dæmi séu tekin.
Búið að taka frambremsudælu í sundur
Verið að sandblása dæluna
Máluð og samsett. tilbúinn að setja í Og dælan komin í bílinn. Bremsudiskar voru sem nýir væru, semsé mjög góðir
Uppfærsla 27.6.2010
Eitthvað er þetta nú subbulegt... !!!!
Og þetta líka.
Er ekki rétt að taka þetta úr og mála þetta eitthvað?
Hér er búið að sandblása afturdrifið og verið að undirbúa að fara að mála það.
Og þetta er framdrifið.
Þegar búið var að mála drifið var rétt að fara með bílinn á lyftuna.
Og það tókst. Hróðugur aðstoðarmaðurinn glaður með árangurinn í baksýn.
Og þá er rétt að þrífa grindina.
Svona þarf að ná henni allri og pússa hana svo.
Þá er að matta grindina fyrir málun.
Hér er búið að setja smá grunn á grindina.
Og hér er búið að mála grindina.
Sjónarhorn aftanfrá.
Þá er næst að setja nýmálaðar hásingarnar undir bílinn.
Og hér er afturdrifið komið í ásamt nýju
Hér er allt að verða voða fínt.
Búið að gera allt upp í bremsum.......
.........og Klaus farinn að standa aftur í hjólin.
Þessum lið uppgerðarinnar er lokið
|
|---|