Nafngiftin Klaus Hergesheimer Hvers vegna þetta nafn? Þegar bíllinn kom fyrst til mín var verið að ræða örlög hans og þá hvort rífa ætti hann, eða laga. Ég komst að þeirri niðurstöðu að það ætti að laga bílinn. Vinur minn Gunnar Örn var að ræða þetta mál við mig þegar ég tjáði honum að ég væri búinn að taka ákvörðun um að laga bílinn. Þá sagði hann. "Verður þá ekki að finna viðurnefni á hann" Mér varð þá að orði. "Ekki dettur mér neitt í hug. Það mætti nú kanski nota Klaus Hergesheimer" Við það sprakk Gunnar úr hlátri, enda sérlega vel kunnugur kvikmyndunum um njósnara hennar hátyggnar, James Bond 007. Við svo búið festist nafnið við bílinn. En hver var Klaus Hergesheimer? Jú í myndinni um James Bond, Dimonds are forever, er Bond laumufarþegi í grænum Ford Econoline bíl eknum af Doctor Metz á leið í neðanjarðarrannsóknarstöð í Nevada eyðimörkinni í Bandaríkjunum. Þegar komið er niður í byrgið horfir Bond á eftir Metz fara inn um hurð sem opnuð er með aðgangskorti og veitir honum eftirför, en nær ekki inn um hurðina. Í því kemur maður sem kynnir sig svo "Hi my name is Klaus Hergesheimer, G-section" Bond notfærir sér þessi kynni og laumast með honum inn fyrir hurðina. Síðar þykist vera Klaus til að laumast inn í rannsóknarstofu Doctor Metz og snuðra þar eftir því sem hann langar að sjá. Þetta hinsvegar á eftir að koma sé í koll fyrir hann skömmu síðar er hin rétti Klaus kemur inn úr dyrunum og kynnir sig.
|
|---|