Þjónusta okkar
Varahlutir Við eigum á lager töluvert magn af varahlutum í Mercedes-Benz bíla á öllum aldri og einnig erum við með varahluti í ýmsa yngri Volkswagen, Skoda og Audi bíla. Víð bjóðum viðskiptavinum okkar upp á gæðavarahluti sem í mörgum tilfellum eru sambærilegir að gæðum og upprunalegir íhlutir, en samt á mun hagstæðara verði. Við vinnum stöðugt að uppsetningu vefverslunar eða einskona upplýsingavefs þar sem hægt er að fá nákvæmari upplýsingar um vöruúrval okkar. Slóðin er www.doktorinn.web.is
Almennar bílaviðgerðir Við bjóðum upp á flest allar almennar bílaviðgerðir. Öll umskipti á slithlutum og lagfæringar á biluðu gangverki er eitthvað sem er okkar daglega starf. Þó svo að við bjóðum flestar gerðir bíla velkomnar í viðgerð að þá höfum við að mestu leiti sérhæft okkur í Mercedes-Benz, Volkswagen, Skoda og Audi bílum og búum því yfir nokkurri sérþekkingu á þeim.
Smurþjónusta Við bjóðum við upp á smurþjónustu fyrir flestar gerðir bíla. Einnig sjáum við um olíuskipti á sjálfskiptingum í ýmsum bílum. Yfirleitt þarf ekki að panta tíma hjá okkur fyrir smurþjónustu, en það er samt ekki verra að láta vita af sér í síma 552-5757.
Þjónustuskoðanir Við bjóðum ekki bara venjulega smurþjónustu fyrir bíla, heldur einnig yfirferð á ástandi og öryggisbúnaði í leiðinni. Þetta er mjög góður kostur fyrir alla að taka sem viðbót við venjulega smurþjónustu því að með því að yfirfara ástand í leiðinni má oft koma í veg fyrir ótímabærar og dýrar bilanir.
Ástandsskoðun Við tökum bíla í ástansdsskoðanir, hvort sem um er að ræða í þeim tilfellum sem að eitthver er að spá í að kaupa bíl sem er til sölu, eða bara vill ganga úr skugga um að bíllinn hjá sér sé í góðu lagi. Í meginatriðum eru í boði tvær mismunandi skoðanir. Önnur tekur tillit til öryggisbúnaðar og er kölluð minni skoðun, hin er víðtækari og fer að auki nánar út í ástand bílsins almennt.
|