Fréttir

 

1.10.2011. Bíla-Doktorinn selur bílaflutningabíl. Bílaflutningabíll okkar hefur nú verið seldur. Flutningum í útseldri vinnu hefur þannig verið hætt og viljum við þakka viðskiptavinum fluttningadeildar okkar fyrir viðskiptin. Eldri flutningabíll okkar mun hinsvegar áfram verða í okkar eigu til nota fyrir okkur sjálfa við flutninga á bílum sem eru að koma til okkar í viðgerð og í vöruflutningum fyrir verslun okkar.

 

2.3.2011. Ný bilanagreiningatölva. Við höfum nú fjárfest í nýrri og stórmagnaðari greiningartölvu sem á að geta lesið af velflestum ef ekki öllum fólksbílum, jeppum og sendibílum. Tölvan les ekki bara villukóða frá mótor, heldur einnig af öryggisloftpúðakerfi, skiptingum, ABS og fjölmörgum öðrum stjórnbúnaði bílsins. Við getum því núna boðið okkar viðskiptavinum mjög nákvæma greiningarþjónustu á tölvubúnaði í flestum gerðum bíla.

 

03.01.2011. Mercedes-Benz og nú Volksvagen. Á meðan við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir viðskiptin á liðnum árum og óskum ykkur gleðilegs nýs árs langar okkur að tilkynna um nýja ákvörðun okkar. Síðan við hófum starfsemi höfum við lagt mesta áherslu á að þjónusta Mercedes-Benz bíla, en nú höfum við ákveðið að bjóða einnig þjónustu fyrir VAG-Group bíla sem eru Audi, Skoda og Volksvagen. Við munum fljótlega panta og bjóða upp á varahluti í þá bíla eins og við höfum um nokkurt skeið gert fyrir Mercedes-Benz bíla. Okkur langar því að bjóða eigendur, umráðamenn og viðgerðaraðila á slíkum bílum velkomna í viðskipti til okkar.

 

01.09.2010. Bíla-Doktorinn hefur nú fengið nýtt og stærra húsnæði fyrir alla starfsemi sína að Skútuvogi 13 í Reykjavík. Þangað munum við á næstu dögum flytja og vonumst til að geta opnað þar 6. september n.k.

 

01.05.2010. Enn bætist í lagerinn okkar og nú erum við farnir að flytja inn hluti frá nokkrum byrgjum. Einnig erum við komnir með olíur og olíuvörur frá Kroon-Oil í Hollandi.

 

15.03.2010. Bíla-Doktorinn hefur nú hafið eigin innflutning á varahlutum. Fyrst um sinn ætlum við að flytja inn varahluti í Mercedes-Benz og er fyrsta vörusendingin nú komin í hús.

 

15.06.2009. Nú eru starfsmenn okkar orðnir þrír. Það ætti að gera okkur kleyft að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur en áður.

 

25.09.2008. Fyrirtækið Bíla-Doktorinn ehf fékk kennitölu í dag. Það er von okkar að þetta sé upphaf af glæstri framtíð félagsins.

 

01.09.2008. Verkstæðið á Bakkabrautinni hefur verið opnað. Við bjóðum alla viðskiptavini velkomna.

 

30.06.2008. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að stofna bílaverkstæði með hinu skemmtilega nafni Bíla-Doktorinn og hefur því verið fundinn staður í vesturbæ Kópavogs. Áætluð opnun er í endaðan ágúst 2008.

 

 

doktorinn@doktorinn.is